Hugsanlegt að Gæslan taki við verkefnum af Varnarmálastofnun

Varnarmálastofnun.
Varnarmálastofnun.

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að skoða þyrfti hvort hægt yrði að fela Landhelgisgæslunni einhver þau verkefni sem Varnarmálastofnun er ætlað að vinna. Hins vegar sé of snemmt að segja til um hvort slík hagræðing bjargi Landhelgisgæslunni og hennar fjármálum. 

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði Rögnu um mál Landhelgisgæslunnar í ljósi þess, að segja ætti upp þyrluflugmönnum, sem myndi leiða til að björgunargeta stofnunarinnar muni skerðist verulega og ekki verði hægt að halda úti tvöfaldri vakt þyrluáhafna.

Sagði Sigurður algerlega óviðunandi að öryggi sjómanna sé teflt í hættu með þessu móti. Spurði hann hvort kannað hefði verið hvort hægt væri að fela Landhelgisgæslunni þau verkefni, sem Varnarmálastofnun sinnir og nota þá fjármuni, sem ætlaðir eru Varnarmálastofnun, um 1,5 milljarða króna á þessu ári. Sagðist Sigurður Kári vera sannfærður um að nota megi þessa fjármuni betur, þar á meðal til að styrkja innviði Landhelgisgæslunnar.

Ragna sagði, að fara yrði varlega í hagræðingaraðgerðum þegar komi að öryggi sjómanna og annarra. En Landhelgisgæslunni væri markaður útgjaldarammi árið 2009, og það væri ekki á valdi framkvæmdavaldsins að breyta því.

Ragna sagði, að hagræðingaraðgerðir stofnunarinnar miðuðu að því að skerða leitar- og björgunargetu hennar sem minnst. Fara þyrfti í gegnum sársaukafullar aðgerðir en flugrekstardeildin þurfi að þola minnsta skerðingu og fimm þyrluvaktir af sex haldi sér. Uppsagnir hjá einni þyrluvakt koma að fullu til framkvæmda í lok sumars en Ragna sagði, að sér væri tjáð að björgunargetan muni ekki skerðast. 

Tilfærsla verkefna frá Varnarmálastofnun til Landhelgisgæslunnar væri einn af hagræðingarmöguleikunum sem verði að skoða. Hins vegar verði skoða hvort sameining stofnana skili raunverulegri hagræðingu áður en viðræður um slíka sameiningu hefjast.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert