Ekkert svínaflensu tilfelli hér á landi

Landspítali
Landspítali Ómar Óskarsson

Engin tilfelli inflúensu A (H1N1) hafa verið staðfest hér á landi hin árlega inflúensa, sem gekk hér í vetur, er enn í gangi á Íslandi og hafa nokkur slík tilfelli verið greind hér á síðustu dögum. Engir sjúklingar með alvarleg einkenni inflúensu hafa verið lagðir inn á Landspítalann núna um helgina.

Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi heimsfaraldurs er óbreytt hér landi og ekki áformað að grípa til róttækari aðgerða en þegar hefur verið gert, samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins. Einkenni veikinnar eru enn sem komið er væg nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 23, þar af 22 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.

Á síðasta sólarhring voru staðfest 30 ný tilvik á Evrópska efnahagssvæðinu, þar af 24 á Spáni.

„Áréttað skal að birgðir sem íslensk heilbrigðisyfirvöld ráða yfir af lyfjum gegn inflúensu A (H1N1), 100.000 skammtar, eru annars vegar Tamiflu (80.000 skammtar) og Relenza (20.000 skammtar). Þetta er tekið fram hér vegna þess að dæmi eru um að í fjölmiðlum hafi verið fullyrt að allar birgðirnar væru Tamiflu-lyf en það er sem sagt ekki rétt," að því er segir í tilkynningu.

WOLFGANG RATTAY
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert