Allir þingforsetar konur

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var kjörin forseti Alþingis í dag.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir var kjörin forseti Alþingis í dag. mbl.is/Kristinn

Forseti og varaforsetar Alþingis eru allir konur en kosið var í embættin þegar þingfundi var haldið áfram nú síðdegis. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, fékk 59 atkvæði þegar kosið var í embætti forseta Alþingis, þrír greiddu ekki atkvæði en einn þingmaður var fjarverandi.

Varaforsetar þingsins voru kjörnar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Þuríður Backmann og  Álfheiður Ingadóttir, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Í kjölfarið var kosið í nefndir þingsins. Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram á mánudagskvöld. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert