Nýr vefur um vistvæn innkaup

Nýr vefur um vistvæn innkaup hefur verið opnaður á slóðinni vinn.is. Á vefnum eru hagnýtar upplýsingar sem gagnast kaupendum og útboðsaðilum, um það hvernig best er að kaupa inn og bjóða út á vistvænan hátt. Þar er einnig að finna ráðleggingar til seljenda.

Vefur um vistvæn innkaup er á vegum verkefnisins Vistvæn innkaup, en í stýrihópi verkefnisins sitja fulltrúar frá frá Umhverfisráðuneyti, Ríkiskaupum, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ.

Vefurinn styður við auknar áherslur opinberra aðila á því að taka tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða við innkaup. Skrifað var undir stefnu um vistvæn innkaup ríkisins í mars á þessu ári.  Íslenska ríkið kaupir vörur, þjónustu og verk fyrir meira en 100 milljarða króna á ári sem er um fjórðungur af útgjöldum ríkisins. Með því að hafa umhverfissjónarmið til hliðsjónar við þessi innkaup, getur ríkið komið miklu til leiðar í umhverfismálum.

Vistvæn innkaup fela í sér margs konar ávinning fyrir kaupendur, birgja og samfélagið allt. T.d. draga vistvæn innkaup úr umhverfisáhrifum, þau geta minnkað kostnað og aukið gæti og síðast en ekki síst auka vistvæn innkaup framboð á vistvænum vörum og þjónustu sem nýtist samfélaginu í heild og hvetja til nýsköpunar.

Vefur um vistvæn innkaup

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert