Mótmæla lögbanni á RÚV

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Friðrik Tryggvason

Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu mótmæla lögbanni  á fréttir Ríkisútvarpsins sem byggja á gögnum frá  lánanefnd Kaupþings í aðdraganda efnahagshrunsins.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félögunum.

„Lögbannið er fráleitt, gengur gegn hagsmunum almennings og hefur þann eina tilgang að þagga niður fréttaflutning um hrunið, aðdraganda þess og eftir atvikum ábyrgðarmenn.

Félagið telur að ef lögbannið verður staðfest af dómstólum þurfi Alþingi að breyta lögum um bankaleynd tafarlaust til að tryggja eðlilega og lýðræðislega umræðu."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert