Fjárveiting til RÚV hækkar

Ríkisútvarpið.
Ríkisútvarpið. mbl.is/Árni Sæberg

Gert er ráð fyrir að fjárveiting til Ríkisútvarpsins hækki á næsta ári um 273 milljónir frá fjárlögum yfirstandandi árs. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2010, sem lagt var fram í dag, verða fjárframlög til Ríkisútvarpsins  samtals 3,2 millljarðar króna.

Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að lagt sé til að fjárveiting hækki um 630 milljónir króna. með hliðsjón af áætluðum tekjum af útvarpsgjaldi. Á móti kemur, að gert er ráð fyrir að framlag til fyrirtækisins lækki um 357 milljónir frá fjárlögum yfirstandandi árs til að mæta markmiðum ríkisstjórnarinnar um lækkun ríkisútgjalda. 

Fjárlagafrumvarpið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert