Jólaþorp opnað við Laugaveg

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði jólaþorpið.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði jólaþorpið. mbl.is/Golli

Jólaþorp var formlega opnað á svonefndum Hljómalindarreit við Laugaveg í dag. Þar hefur verið komið fyrir skreyttum tréhúsum og tjöldum og munu skemmtikraftar, skáld, tónlistarmenn, uppistandarar og jólasveinar koma þar fram næstu vikur eða til jóla. 

Í sölutjöldum verður m.a. á boðstólum  íslensk hönnun og heimilisiðnaður, ýmislegt góðgæti, jólatré , skreytingar, skartgripir o.fl.

Þorpið verður opið alla daga frá 13-18 og lengur er nær dregur jólum, en verslanir í miðborginni verða opnar frá kl. 10-22 alla daga fram að jólum og  til kl. 23 á Þorláksmessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert