Segir stjórnina starfa áfram
„Stjórnin starfar áfram og hefst handa við að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðsluna,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, að loknum þingflokksfundi nú síðdegis. Hann sagði að nú væri ekkert annað að gera en að halda áfram. „Við hlaupum ekki frá landsstjórninni.“
Björgvin sagði að umræður á þingflokksfundinum hafi verið yfirvegaðar og hófstilltar um þá ákvörðun forseta Íslands að synja Icesave-lögunum staðfestingar. „Þetta er stjórnskipun í landinu og við gerum ekki athugasemd við það, þó að við séum mjög ósátt við ákvörðun forseta. Við teljum að hinar efnahagslegu afleiðingar af ákvörðun hans geti verið mjög alvarlegar,“ sagði Björgvin.
Hann sagði að af erlendum fjölmiðlum að ráða séu afleiðingar ákvörðunar forsetans þegar farnar að koma í ljós. „Þær virðast ætla að verða jafnvel enn þá harkalegri og alvarlegri heldur en hinir svartsýnu spáðu,“ sagði Björgvin. Hann sagði að vonandi tækist að lágmarka skaðann og gera grein fyrir afstöðu stjórnvalda hér.
„Við ætlum ekki að hlaupast frá þessari ábyrgð. Málið er í þessum farvegi núna og við erum að reyna að vinna úr því,“ sagði Björgvin.
Hann sagði að ákvörðun forsetans hafi valdið djúpstæðum vonbrigðum meðal þingmanna Samfylkingarinnar. „Fólk lá ekkert á þeirri skoðun sinni að flestir urðu fyrir gríðarlegum vonbrigðum með þessa óábyrgu ákvörðun forseta Íslands.“
Aðspurður sagði Björgvin að ekki hafi borið á góma að slíta stjórnarsamstarfi og efna til alþingiskosninga. „Það var ekkert annað en að halda þessu samstarfi áfram af fullum krafti og undirbúa þjóðaratkvæðagreiðsluna. Vinna þannig úr málum að lágmarka skaðann og halda áfram að vinna þjóðina út úr þessum erfiðleikum.“
Björgvin sagði óvíst hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. Hún krefjist nokkurs undirbúnings og það taki sjálfsagt einhverjar vikur og mánuði.
Bloggað um fréttina
-
Guðni Karl Harðarson Nú er tækifærið fyrir almenning! -
Ómar Geirsson Skömm því jafnvel Eiríkur Fjalar gæti betur. -
Gestur Guðjónsson Úlfur – úlfur – úlfur -
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. janúar 2010, Innlent Mikil reiði í stjórnarliðinu vegna ákvörðunar og framkomu forseta
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Fimmtudagur, 16. apríl 2009, Innlent Krónan mun styrkjast
- Sunnudagur, 25. janúar 2009, Innlent Geir: Má ekki missa dampinn
- Sunnudagur, 25. janúar 2009, Innlent Björgvin segir af sér
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































