Segir upp 54 flugmönnum

Boeing 757-þota Icelandair.
Boeing 757-þota Icelandair. Árni Sæberg

Icelandair hefur sent 28 flugmönnum uppsagnarbréf til viðbótar við þá 26 sem fengu uppsögn í byrjun mánaðarins. Uppsögnin tekur gildi 1. september nk. Uppsagnirnar voru tilkynntar á fundi flugmanna hjá félaginu nú síðdegis. 

Fram kemur í tilkynningu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna að uppsagnirnar hjá félaginu í ár séu fleiri en veturinn 2009-2010.

„Stjórn FÍA lýsir undrun sinni á þessum uppsögnum, sérstaklega í ljósi þess að aukning er í áætlunarflugi hjá Icelandair næsta vetur og jafnframt liggja nú þegar fyrir leiguflugsverkefni fyrir veturinn sem lofi góðu. Ef þessar 54 uppsagnir taka gildi eru alls 90 flugmenn í uppsögn hjá félaginu.

Hjá FÍA er verið að fara yfir útreikninga á áhafnaþörf Icelandair um þessar mundir og ætti niðurstaða að liggja fyrir á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert