Mjög gagnlegur fundur

Sperrur fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík.
Sperrur fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík.

„Þetta var mjög góð umræða. Ég tel að fundurinn hafi verið mjög gagnlegur fyrir alla aðila og hjálpað við að koma málinu áfram,“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls eftir fund sem iðnaðarráðherra boðaði til í dag um stöðu framkvæmda við Helguvíkurálverið.

Fundurinn var haldinn í húsnæði Ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag. Hann sátu  forsvarsmenn Norðuráls, orkufyrirtækja, Orkustofnunar, sveitarfélaga á Suðurnesjum og forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins auk Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra.  

Engar ákvarðanir voru teknar en að sögn Ragnar var farið yfir hver væru helstu verkefnin sem þarf að leysa til að koma framkvæmdum áfram.  Ragnar sagði mikilvægt að menn vinni samhentir að því að leysa það sem út af stendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert