Tarantúlur, sporðdrekar og snákar í farangrinum

Hluti dýranna sem Tollgæslan lagði hald á
Hluti dýranna sem Tollgæslan lagði hald á Af vef Tollstjóra

Í síðasta mánuði lagði tollgæslan hald á þrjár lifandi kóngulær af Tarantúluætt en auk þess  fundust tveir Emperial sporðdrekar í farangri hjá farþega sem átti leið um flugvöllinn.  Í framhaldi var gerð  líkamsleit á viðkomandi og fundust þá  fjórir snákar innanklæða hjá honum.  Dýrin voru haldlögð og farið var með þau samdægurs til förgunar að Keldum.

Innflutningur á skriðdýrum til Íslands er bannaður. Bannið er til komið vegna alvarlegra sjúkdómstilfella í fólki af völdum salmonellasmits sem rekja má með ótvíræðum hætti til þessara gæludýra, samkvæmt vef tollgæslunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert