Turninn til leigu

Turninn á Lækjartorgi.
Turninn á Lækjartorgi.

Reykjavíkurborg hefur óskað eftir hugmyndum að starfsemi og tilboðum í leigu turnsins á Lækjartorgi. Segir á vef borgarinnar að við val á væntanlegum leigutaka verði horft til þess að starfsemin bæti við framboð í miðborginni og gæði hana þannig meira lífi.

Tekið er fram að ekki geti verið um hefðbundna matsölu að ræða þar sem turninn uppfylli ekki heilbrigðiskröfur um slíka starfsemi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert