Mætti þremur þjófum heima

mbl.is/Júlíus

Konu í Kópavogi brá heldur betur í brún þegar hún kom heim til sín í gærkvöldi því að inni í íbúðinni voru þrír þjófar að gera sig klára til að láta greipar sópa.

Konan hringdi strax á lögreglu, en þjófarnir voru á bak og burt þegar hún mætti á staðinn stuttu seinna. Engu hafði verið stolið úr íbúðinni en konunni var mjög brugðið.

Lögreglumenn í Reykjavík stöðvuðu þrjá þjófa sem voru að sniglast í kringum vinnuskúr í Úlfarsfellshverfi í gærkvöldi. Þeir voru með þýfi í fórum sínum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert