Halldór mættur til skýrslutöku

 „Allt sem ég hef komið nálægt hef ég gert er í fullu samræmi við lög og reglur, það er mín skoðun,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, þegar hann mætti til skýrslutöku hjá embætti sérstaks saksóknara eftir hádegið í dag.

Það var létt yfir Halldóri þegar hann spjallaði stuttlega við fréttamenn. Hann kvaðst vera mættur til skýrslutöku og taldi rétt að ræða við þá sem vildu við hann tala og átti þar við starfsmenn sérstaks saksóknara.

Halldór kvaðst skilja áhuga fréttamanna á málinu en ekki ætla að tjá sig um það nánar við þá að sinni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert