ASÍ: Nær allir vilja sameiginlega launastefnu

Fulltrúar ASÍ á fundi með SA nýverið.
Fulltrúar ASÍ á fundi með SA nýverið. mbl.is/Golli

Ný skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir ASÍ sýnir að 94% þeirra sem taka afstöðu vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla í komandi kjarasamningum á móti 6% sem vilja meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Þar segir að 48% viji að verkalýðshreyfingin leggi mesta áherslu á að tryggja kaupmátt launa í yfirstandandi kjaraviðræðum en 24% vilji að áherslan sé að tryggja atvinnuöryggi.

Segir í tilkynningu að í báðum spurningum hafi þeir aðeins spurðir sem eigi aðild að stéttarfélögum.

Fyrri spurningin hafi hljóðað svo:

„Nú standa yfir viðræður um nýja kjarasamninga. Hvort ertu hlynntari því að verkalýðshreyfingin leggi áherslu á sambærilegar launahækkanir fyrir alla, eða meiri launahækkanir til þeirra sem starfa í útflutningsgreinunum, sem njóta nú góðs af gengi krónunnar?“

ASÍ segir að 94% hafi sagst vilja sambærilegar launahækkanir fyrir alla en 6% hafi viljað að þeir fái meiri launahækkanir sem starfi í útflutningsgreinunum.

Þá segir að hin spurningin hafi snúið að því hvað verkalýðshreyfingin ætti að leggja mesta áherslu á í kjaraviðræðunum.

Fram kemur að 19% vilji beinar launahækkanir, 48% að kaupmáttur verði tryggður og 24% að áherslan verði á atvinnuöryggi.

Um 1.200 manna slembiúrtak úr þjóðskrá var að ræða. Könnunin var gerð í gegnum síma dagana 5.-16 febrúar 2011. Nettósvarhlutafall var 62,9%.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert