Eru ekki allir í góðum gír?

Árni Johnsen og félagar stýrðu brekkusöng í Herjólfsdal í kvöld.
Árni Johnsen og félagar stýrðu brekkusöng í Herjólfsdal í kvöld. mynd/Guðrún Lilja

„Eru ekki allir í góðum gír?" spurði Árni Johnsen þegar hann hóf brekkusöng á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í kvöld en Árni var forsöngvari ásamt Jarli Sigurgeirssyni og Sæþór Vídó.

Árni lét brekkuna hrópa ferfalt húrra fyrir þjóðhátíðarnefndinni fyrir að láta smíða „besta útisvið í Evrópu."

Áætlað er að um 14 þúsund manns séu í Herjólfsdal. Veðrið hefur verið skaplegt í dalnum í kvöld þótt nokkuð hafi súldað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert