Undrast ummæli borgarstjóra um skólamál

Jón Gnarr, borgarstjóri.
Jón Gnarr, borgarstjóri. mbl.is/Sigurgeir

Stjórn SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, segjast undrast  ummæli Jóns Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, í morgunútvarpi Rásar 2 í gær þar sem borgarstjóri sagði að íslenskt skólakerfi væri ekki nógu sveigjanlegt og því væri farsælast að leggja niður skólaskyldu í stað þess að neyða börn til að fást við það sem þau hafa ekki áhuga á.

Í ályktun segist stjórn SAMFOK telja  óábyrga umræðu af þessu tagi varhugaverða, sérstaklega um þessar mundir þegar skólastarf sé að hefjast eftir  mikinn niðurskurð í skólakerfinu og framundan séu viðkvæm sameiningarferli skóla. Ummæli af þessu tagi séu stórkostleg vanvirðing við fagstarf kennara og geti beinlínis verið skaðleg. Óvissa hjá skólastjórnendum, kennurum, nemendum og  foreldrum fyrir komandi skólaár sé næg án þess að borgarstjóri geri sér að leik að auka á hana.

„Stjórn SAMFOK harmar að borgarstjóri hafi átt erfiða grunnskólagöngu en nú er hann æðsti yfirmaður skólamála í Reykjavík og getur þessvegna ekki leyft sér að tala óábyrgt um málefni grunnskólanna sem eru bundnir í landslög líkt og skólaskylda. Nær væri að borgarstjóri veitti meira fé í rekstur skóla  borgarinnar svo þeir geti með sóma sinnt þörfum allra  barna og komið í veg  fyrir að þau yfirgefi grunnskólann með viðlíka reynslu að baki og Jón  Gnarr," segir í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert