Ánægður með gang viðræðna við ESB

Össur Skarphéðinsson og Guido Westerwelle
Össur Skarphéðinsson og Guido Westerwelle

Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, lýsti ánægju sinni með góðan gang í viðræðum Íslendinga og Evrópusambandsins um aðild Íslands sambandinu og ítrekaði áframhaldandi afdráttarlausan stuðning Þýskalands við Ísland.

Sagði hann þýsk stjórnvöld áfram vera tilbúin til að veita góð ráð og aðstoð, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti fund með Westerwelle á Bókastefnunni í Frankfurt í gær.

Ráðherrarnir ræddu stöðu evrunnar með hliðsjón af skuldavanda ákveðinna evruríkja og sagði Westerwelle Evrópusambandið einbeitt í að komast í gegnum yfirstandandi vanda. Hann lýsti hugmyndum sínum um áframhaldandi þróun samvinnu í Evrópu. Þá ræddu ráðherrarnir rannsóknir og vísindasamstarf á norðurslóðum og hvernig efla megi samstarf ríkjanna í þeim málaflokki.

„Á fundinum ræddu ráðherrarnir stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins þar sem utanríkisráðherra gerði grein fyrir áherslum Íslands og næstu skrefum í viðræðunum. Ráðherra þakkaði fyrir öflugan stuðning Þjóðverja í ferlinu hingað til og sagðist vonast til þess að allt helmingur þeirra samningskafla sem eftir væru yrðu opnaðir á þessu ári og hinn helmingurinn á fyrri helmingi næsta árs.

Mikilvægt væri að komast sem fyrst í viðræður um sjávarútveg og landbúnað. Þá sagði utanríkisráðherra mikilvægt að vinna áfram vel í þeim kafla sem lýtur að málefnum evrunnar sem tengdist framtíðarfyrirkomulagi peningamála á Íslandi," segir í tilkynningu.  

Sjá frétt mbl.is um fund utanríkisráðherranna síðan í gærkvöldi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert