Ráðin verkefnastjóri hjá LA

Helga Mjöll Oddsdóttir
Helga Mjöll Oddsdóttir

Helga Mjöll Oddsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Ráðið er til 6 mánaða og er starfsvið verkefnastjóra að fylgja eftir í verki leikárinu sem búið er að kortleggja og nú þegar hafið er.  Ellefu manns sóttu um starfið.

Helga er 31 árs Akureyringur, með BA í textílhönnun. Helga hefur ýmsa reynslu af framleiðslu á leiknu efni bæði í leikhúsi og í kvikmyndum.  Hún hefur starfað áður fyrir LA, fyrst árið 2007 sem aðstoðarmaður við búninga og aftur núna í haust þegar Helga hannaði búningana fyrir leiksýninguna Svarta Kómedían sem er sýnd í Samkomuhúsinu um þessar mundir, segir í tilkynningu frá LA. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert