Ögmundur styður Jón

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, styður Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, í embætti. Ögmundur sagði þetta við fréttamenn er hann yfirgaf Stjórnarráðsbygginguna eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Þegar Ögmundur var spurður að því hvort hann myndi styðja ríkisstjórn án Jóns Bjarnasonar svaraði hann því til að hann styddi Jón Bjarnason án þess að skýra mál sitt frekar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert