Samkomulag um almenningssamgöngur á Suðurlandi

Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður SASS, og Gísli Friðjónsson, forstjóri Hópbíla, …
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður SASS, og Gísli Friðjónsson, forstjóri Hópbíla, undirrituðu samkomulagið í dag.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Hópbílar hf. hafa undirritað samning um almenningssamgöngur á starfssvæði Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og  milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins. 

Samningurinn  tekur gildi frá og með  næstu áramótum. Um verður að ræða eitt samtengt almenningssamgöngukerfi sem nær frá Reykjavík austur að Höfn í Hornafirði. 

„Samningurinn felur í sér eflingu almenningssamgangna frá því sem verið hefur og þær verða nú  allar á einni hendi og akstur og gjaldskrá samræmd. Breytingin felur m.a. í sér að fleiri eiga möguleika að sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins og öfugt. Þegar líður á næsta ár verða teknir í notkun nýir vagnar. Vagnarnir verða auðkenndir í sérstökum litum og í þeim nettenging til þæginda fyrir farþega. Sætaframboð verður þó aukið strax eftir áramót, 20 sæta aukning verður í öllum bílum og einni ferð bætt við snemma morguns frá Reykjavík.

Leiðakerfið og þjónusta við farþega verður kynnt sérstaklega á næstu vikum,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert