Mikil vöntun á blóði

Blóðbankinn þarf um 70 blóðgjafa á dag.
Blóðbankinn þarf um 70 blóðgjafa á dag. mbl.is/Ómar

Mikil vöntun er á blóði í Blóðbankanum um þessar mundir. Á vefsvæði bankans eru allir aflögufærir hvattir til að koma í blóðgjöf. Ástæðan er helst að jólin nálgast með tilheyrandi annríki og því hafa margir í öðru að snúast.

Á vefsvæði Blóðbankans má einnig sjá þá blóðflokka sem mest vöntun er á. Þar eru nefndir O+, A-, A+, AB-, og AB+.

Opið er í Blóðbankanum til kl. 19 í kvöld en frá 8-15 þriðjudaga og miðvikudaga.

Blóðbankavefurinn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert