Telur margt jákvætt í frumvörpunum

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur sent inn umsögn við frumvörpum stjórnvalda um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Vegna þess hvað frumvörpin eru nátengd var aðeins send ein umsögn um bæði frumvörpin.

Innan fjölmennra samtaka eins og SGS hafa verið mjög skiptar skoðanir um þessi frumvörp og hver áhrif þeirra verða á fiskvinnslufólk og byggðir landsins. SGS telur margt jákvætt í frumvörpunum. Engu að síður þarf að gera töluverðar breytingar á þeim, ef koma á í veg fyrir neikvæð áhrif þeirra á fiskvinnslufólk. Ef tekið verður tillit til hagsmunaaðila eiga frumvörpin að geta skapað grunn að breiðri sátt í samfélaginu, sem um leið skapar stöðugleika og festu í atvinnulífinu, segir í frétt á vef sambandsins.

Sjá umsögnina í heild hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert