Taka yrði lán fyrir snjóhengjunni

Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra.
Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Flestir minnast þess þegar um það var rætt í aðdraganda hrunsins að ríkið tæki risastórt lán erlendis til bjargar bönkunum. Íslands hamingju varð það að vopni að enginn vildi lána Íslendingum slíka fjárhæð. Nú getum við sannarlega glaðst yfir því að það risalán var aldrei tekið,“ segir Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra  og þingmaður Alþýðubandalagsins, á vef Vinstrivaktarinnar gegn ESB. Staða Íslands væri þá önnur og miklu verri en hún er í dag.

Ragnar gagnrýnir þau ummæli Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, að besta leiðin til þess að losna undan „snjóhengju þúsund milljarða króna í útlenskri eigu“ sé að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. Hann bendir á að sú leið fæli það í sér að taka annað hvort lán eða fá bankalínu fyrir upphæðinni sem íslenska ríkið yrði í ábyrgð fyrir.

„Þar með væri stefnt að því að veðsetja skattgreiðendur á Íslandi fyrir risastórri fjárhæð sem nýtt yrði til þess að erlendir verðbréfaeigendur, sem eiga fé hér á landi frá tímum jöklabréfa og gengisbrasks erlendra vogunarsjóða, geti breytt innistæðum sínum yfir í erlendan gjaldeyri og sloppið úr höftunum með allt sitt á þurru,“ segir Ragnar.

Hann bendir einnig á talsmenn ESB hafi sagt að Ísland gæti ekki gengið í sambandið fyrr en eftir að gjaldeyrishöftin hefðu verið afnumin. Það kæmi ekki heim og saman við ummæli Össurar. „Þessu til staðfestingar má benda á svonefnda framvinduskýrslu um aðildarumsókn Íslands sem birt var í mars, en þar er ítrekuð sú skoðun Evrópuþingsins að afnám gjaldeyrishafta sé skilyrði fyrir aðild að sambandinu og upptöku evru.

Grein Ragnars Arnalds

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert