Bílslysið rakið til gæsahóps

Mikill eldur kviknaði við aftanákeyrsluna eins og sjá má.
Mikill eldur kviknaði við aftanákeyrsluna eins og sjá má. mbl.is/Arnar Bergur

Árekstur, sem varð á Hringbraut í gærkvöldi, má rekja til þess að ökumenn þriggja bifreiða höfðu numið staðar til að hleypa gæsahóp yfir götuna. Sá fjórði náði ekki að stöðva í tæka tíð og keyrði aftan á öftustu bifreiðina með þeim afleiðingum að eldur braust út.

Slökkviliðið var kallað á vettvang og lokaði lögreglan svæðinu umhverfis slysstaðinn, m.a. Njarðargötu og hluta Hringbrautarinnar. Voru margir slökkvibílar og lögreglubílar á vettvangi.

Einn var fluttur á slysadeild en að sögn lögreglunnar sakaði engan þótt ökumönnunum hafi vissulega verið brugðið eftir atvikið. Báðir bílarnir eru ónýtir.

Frétt mbl.is: Eldur í bílum á Hringbraut

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert