Tryggvi vill leiða listann í NA-kjördæmi

Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður.
Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að gefa kost á sér í 1. sæti Norðausturkjördæmis í komandi prófkjöri flokksins og þar með leiða lista sjálfstæðismanna í kjördæminu.

Tryggvi skipaði annað sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar en fyrsta sætið skipaði hins vegar Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður.

Tryggvi hefur því ákveðið að keppa við Kristján um fyrsta sætið og þar með stöðu oddvita sjálfstæðismanna í kjördæminu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert