Fimm bílar ónýtir og þrír skemmdir

Fimm bílar á Iðavööllum í Reykjanesbæ eru gerónýtir eftir bruna …
Fimm bílar á Iðavööllum í Reykjanesbæ eru gerónýtir eftir bruna í gær og þrír til viðbótar mikið skemmdir. Gerendur hafa enn ekki fundist. Ljósmynd/Guðjón Örn Guðjónsson

Nú hefur komið í ljós að fimm bílar á Iðavöllum í Reykjanesbæ eru gjörónýtir eftir bruna í gær og þrír til viðbótar eru mjög mikið skemmdir. Talið er að gerendur hafi stolið bensíni með þeim afleiðingum að skammhlaup varð og eldur kviknaði.

Lögreglan segist hafa grun um hverjir gerendur eru, en unnið er að rannsókn málsins og enginn er ennþá í haldi lögreglu vegna málsins.

Frétt mbl.is: Stóð í ljósum logum í Reykjanesbæ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert