Hættustigi aflétt að hluta

Ríkislögreglustjóri hefur aflétt hættuástandi að hluta
Ríkislögreglustjóri hefur aflétt hættuástandi að hluta mbl.is/Árni Sæberg

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og Akranesi hefur ákveðið að aflétta hættustigi almannavarna í umdæmi lögreglustjórana á Selfossi, Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og Akranesi.
Óveðrið hafði lítil áhrif á þessum svæðum.

Í umdæmi lögreglustjórans í Borgarfirði og Dölum, á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, Blönduósi, Skagafirði, Akureyri og Húsavík verður enn um sinn starfað á hættustigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert