Hemmi Gunn jarðsettur á föstudag

Hemmi Gunn.
Hemmi Gunn. mbl.is

Útför fjölmiðlamannsins ástsæla Hermanns Gunnarssonar, Hemma Gunn, verður gerð frá Hallgrímskirkju næstkomandi föstudag, 28. júní kl. 15. Sjónvarpað verður frá athöfninni í Valsheimilið að Hlíðarenda, en þar verður erfidrykkjan einnig haldin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá börnum og systkinum Hermanns.

Þar segir: „Ferlið, sem snúið hefur að flutningi á kistu Hermanns Gunnarssonar frá Tælandi, hefur verið nokkuð langt og langar okkur aðstandendurna að skýra málið fyrir vinum hans og velunnurum. 

Hermann var vel tryggður og tók tryggingafélag hans strax á fyrstu dögum við keflinu og hafði milligöngu um flutning á kistunni heim til Íslands, auk þess að annast leyfi og aðra pappírsvinnu.

Svo ólánlega vildi hins vegar til að flugfélagið, sem tryggingafélagið hafði áður verið í tengslum við, var hætt að fljúga á milli Bangkok og Evrópu. Flækti það málið aðeins og tafði ferlið um nokkra daga.

Nú er niðurstaða hins vegar fengin og orðið ljóst að útför verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 28. júní, kl. 15.00.

Sjónvarpað verður frá athöfninni í Valsheimilið að Hlíðarenda, en erfidrykkjan verður einnig haldin þar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert