Ræða ESB-málið á morgun

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þingfundur hefst kl. 15 á morgun og eru 29 mál á dagskrá þingsins. Engir þingfundir fóru fram í vikunni. Til stendur að halda fyrri umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, um að draga umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið til baka, áfram. 

Á dagskrá þingsins er einnig fyrri umræða um þingályktunartillögu Katrínar Jakobsdóttur, um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert