Stjórn Félags leiðsögumanna styður ekki gjaldtöku á ferðamannastöðum „sem lagaleg óvissa ríkir um og brýnir fyrir félagsmönnum sínum að taka ekki þátt, á einn eða annan hátt, í slíkri gjaldtöku“. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórninni.
„Stjórnin hvetur jafnframt til þess að lokið verði sem allra fyrst þeirri vinnu sem snýr að útfærslu „náttúrupassa“ sem heildstæðri, ásættanlegri lausn fyrir ferðaþjónustuna.“