Fleiri ferðum til Ameríku aflýst

Miklar truflanir verða á flugi í dag.
Miklar truflanir verða á flugi í dag. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Icelandair hefur fellt niður 10 flugferðir félagsins síðdegis í dag vegna verkfallsaðgerða flugmanna. Icelandair hafði áður fellt niður 11 ferðir til og frá landinu í morgun og því er samtals 21 ferð felld niður í dag. Um þrjú þúsund farþegar voru bókaðir í þetta flug.

Ferðirnar sem felldar verða niður síðdegis eru til og frá Boston (FI631/FI630), Washington (FI645/FI644), New York JFK (FI603/FI602), Toronto (FI603/FI602) og Denver (FI671/FI670).

„Skæruaðgerðir flugmanna hafa þar að auki valdið verulegri seinkun á flugi Icelandair í gær og í dag. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með upplýsingum um komu- og brottfarartíma enda geta orðið breytingar með skömmum fyrirvara. Mikið álag er á þjónustuveri Icelandair og á starfsfólki á Keflavíkurflugvelli vegna þessa,“ segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, mótmæli því í gær í samtali við mbl.is að félagið stæði fyrir skæruhernaði. Félagið hefði sett á yfirvinnubann og flugmenn flygju því eftir því skipulagi sem flugfélagið ákvæði. Icelandair væri hins vegar ekki með nægilega marga flugmenn í vinnu til að geta haldið uppi skipulagðri flugáætlun án þess að flugmenn ynnu yfirvinnu. Yfirvinnubann flugmanna er ótímabundið.

„Við biðjum viðskiptavini velvirðingar á þessari röskun og ég vil fyrir hönd Icelandair koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrir þann skilning og þolinmæði sem þeir sýna við erfiðar aðstæður,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

„Icelandair mun eftir fremsta megni reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa farþega á aðrar ferðir Icelandair til og frá þessum áfangastöðum ef það er unnt eða breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru á Icelandair.is,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert