„Eins og mýs í búri á tilraunastofu“

Hellisheiðarvirkjun.
Hellisheiðarvirkjun.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands furða sig á því að Heilbrigðiseftirlit Suðurlands (HES) skuli hafa veitt „jákvæða umsögn til tímabundinnar undanþágu frá hertum ákvæðum í reglugerð 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti“ að beiðni Orkuveitu Reykjavíkur. Samtökin segja heilsuspillandi starfsemi njóta vafans – ekki íbúa.

Fram kemur í ályktun sem samtökin samþykktu, að mælingar sýni að styrkur brennisteinsvetnis [H2S] frá Hellisheiðarvirkjun á höfuðborgarsvæðinu hafi vaxið og fari oft og langtímum saman yfir ný viðmiðunarmörk sem taka eiga gildi 1. júlí næstkomandi. 

Þá segja samtökin, að heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hafi lýst þungum áhyggjum af þessari þróun og bent á að nýju viðmiðin dugi varla til. Ástandið sé hvað alvarlegast í Lækjarbotnum á austurjaðri höfuðborgarsvæðisins þar sem séu starfandi bæði leik- og grunnskóli. Þá hafi bæjarstjórn Hveragerðis – en Hellisheiðarvirkjun sé í túnfæti bæjarfélagsins – fordæmt hina „jákvæðu umsögn“ HES og furðað sig á því að OR skuli ekki hafa nýtt þau úrræði til mengunarvarna sem vitað er um og hafa virkað annars staðar.

„Rökstuðningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands fyrir undanþágunni byggist á því að Orkuveita Reykjavíkur vinni að bættum mengunarvörnum Hellisheiðarvirkjunar og að tilraunaverkefni á vegum fyrirtækisins gefi fyrirheit um „varanlega og hagkvæma“ lausn vandans – þannig að „innan skamms“ megi „vænta þess að mengun frá virkjuninni verði undir leyfilegum mörkum skv. reglugerð.“ Í rökstuðningi sínum vísar HES einnig til þess að ekki sé komin nægileg reynsla á „áreiðanleika mælinga“ frá loftgæðamælistöðvum.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands harma þá niðurstöðu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að mengandi og (að öllum líkindum) heilsuspillandi starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði skuli njóta vafans á kostnað íbúa í Hveragerði og austustu byggðum höfuðborgarsvæðisins. Á meðan tilraunaverkefni OR stendur yfir – og þangað til mengunarvandinn hefur verið leystur – eru íbúar í næsta nágrenni Hellisheiðarvirkjunar eins og mýs í búri á tilraunastofu Orkuveitu Reykjavíkur. Slíkt er með öllu óviðunandi,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert