Tveimur mönnum sleppt úr haldi

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Tveir menn sem setið hafa í gæsluvarðhaldi á Akureyri vegna rannsóknar ætlaðrar líkamsárásar á Hvammstanga um síðustu helgi hafa nú verið leystir úr haldi. Hafa þeir ekki lengur stöðu grunaðra í málinu. 

Tveir menn eru enn í haldi og er rannsóknin í fullum gangi. Maðurinn sem lést hlaut þungt höfuðhögg með þeim afleiðingum að höfuðkúpan brotnaði og blæddi inn á heilann, að því er fram kemur í tilkynningu. Að sögn lögreglunnar á Akureyri verða mennirnir tveir yfirheyrðir aftur á morgun.

Rannsóknin miðast að því að komast að því hvenær, hvernig og með hvaða hætti maðurinn fékk þessa áverka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert