Æfingar að hefjast hjá Anítu

Aníta með feiknarstóran örn á öxlinni í Mongólíu.
Aníta með feiknarstóran örn á öxlinni í Mongólíu.

,,Æfingarnar hefjast af fullum krafti á morgun og þá fer ég út á mongólsku sléttuna. Ég er orðin mjög spennt enda styttist verulega í keppnina. Ég geri mér grein fyrir að þetta verður mjög erfitt og krefjandi en ég er samt full tilhlökkunar. Þetta verður spennandi ævintýri,“ segir Aníta Margrét Aradóttir sem mun taka þátt í lengstu og erfiðustu kappreið í heimi í Mongolíu sem hefst 6. ágúst.

Hættulegasta kappreiðin

45 reiðmenn alls staðar að úr heiminum taka þátt í Mongol Derby kappreiðinni sem er 1.000 km löng og jafnframt talin sú hættulegasta sem til er. Keppendur ríða mongólskum villihestum sem eru lítið sem ekkert tamdir en skipt verður um hest á 40 km fresti svo að hest­arn­ir þreyt­ist ekki. Aníta er fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í Mongol Derby reiðinni en hún mun styrkja barna­spítalasjóð Hrings­ins í reiðinni í Mongólíu.

Segja má að fjölbreytni einkenni þátttakendur kappreiðarinnar sem eru allt frá því að vera atvinnuhestamenn til tískubloggara og geimverkfræðinga. Þá sendir breski herinn fimm lífverði Englandsdrottningar til að keppa í ár.

Slappar af fyrir keppnina

Ferðalag Anítu til Mongólíu tók rúman sólarhring og segist hún á Facebook síðu sinni vera búin að skoða sig um í Ulan Batar, höfuðborg Mongólíu, ásamt öðrum keppendum Mongol Derby og slappa aðeins af áður en keppnin hefst. Í dag var Aníta á fundi í Ulan Batar ásamt öðrum keppendum þar sem skipuleggjendur keppninnar fór vel yfir allar reglur, refsistig og hvernig á að umgangast mongólsku villihestana. Mon­g­ol Der­by reiðin hefur verið hald­in undanfarin sex ár og hefur reynst mörgum knöpum ofviða vegna hinnar erfiðu og löngu reiðar.

Keppendum í Mon­g­ol Der­by ber skylda til að safna hvatn­ing­ar­styrk­um og mun Aníta safna fyr­ir fyrir barna­spítalasjóð­ Hrings­ins. Einnig mun hún safna pen­ing til styrkt­ar góðgerðarfé­lags­ins Cool Earth sem vinn­ur að vernd­un regn­skóga Amazon.

Hægt er að heita á Anítu með fjár­fram­lög­um með því að leggja inn á reikn­ing  515- 04 - 253774 til að styrkja Barna­spítalasjóð­ Hrings­ins og 515- 04 - 253778 til að styrkja Cool Earth. Sama kennitala er á báðum reikn­ing­un­um en hún er : 200282-3619

Aníta hefur nýtt tímann fram að keppninni til þess að …
Aníta hefur nýtt tímann fram að keppninni til þess að skoða sig um í Mongólíu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert