Horft verði til lýðheilsusjónarmiða

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna hefur sent frá sér ályktun þar sem fram kemur að afar mikilvægt sé að lýðheilsusjónarmið séu umfram allt höfð að leiðarljósi við afgreiðslu frumvarps um breytingar á lögum afengissölu. Vísað er þar til frumvarps sem Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram og tekið var til umræðu á Alþingi í dag en þar er gert ráð fyrir að afnumin verði einkasala ríkisins á áfengi.

„Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna (LFK) telur afar mikilvægt að lýðheilsusjónarmið séu umfram allt höfð að leiðarljósi við afgreiðslu frumvarps sem lagt hefur verið fram um breytingar á lögum um verslun með áfengi. Frumvarpið brýtur þvert á yfirlýsta stefnu stjórnvalda frá því í janúar sl. í áfengis og vímuvörnum þar sem markmiðin eru, m.a:
Að vernda viðkvæma hópa fyrir skaðlegum áhrifum áfengis og annarra vímugjafa.
Að fækka þeim sem þróa með sér skaðlegt neyslumynstur áfengis eða annarra vímugjafa.
Að draga úr skaða og fjölda dauðsfalla vegna eigin neyslu eða annarra á áfengi eða öðrum vímugjöfum.

Framkvæmdastjórn LFK bendir á, í þessu sambandi, að alþjóðlegum rannsóknum ber saman um að afnám einkasölu á áfengi leiði til aukinnar neyslu þess og að samhliða aukinni áfengisneyslu mun samfélagslegur kostnaður aukast vegna neyslutengdra vandamála þeirra sem neyta áfengis. Framkvæmdastjórn LFK skorar því á alþingismenn, alla sem einn, að huga að fyrrnefndum atriðum við afgreiðslu frumvarpsins.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert