Þverpólitísk sátt höfð að engu

mbl.is/Hjörtur

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem hörmuð er sú ákvörðun borgarstjórnarmeirihlutans að breyta deiliskipulagi Hlíðarendasvæðisins með þeim hætti að gertsé ráð fyrir brotthvarfi neyðarbrautar Reykjavíkurflugvallar. Með þessari ákvörðun sé borgarstjórnarmeirihlutinn að virða að vettugi þverpólitísku sátt sem náðist með skipan Rögnunefndarinnar svonefndrar og ennfremur að ganga þvert gegn vilja mikils meirihluta borgarbúa.

„Lögum samkvæmt þarf ákvörðun borgarstjórnar um að loka flugbraut á Reykjavíkurflugvelli að hljóta samþykki innanríkisráðherra. Borgarbúar hafa, bæði í skoðanakönnunum sem og með stærstu undirskriftarsöfnun í sögu lýðveldisins, vakið athygli á því að þeir vilji hafa flugvöllinn á sínum stað. Í ljósi þess krefst stjórn Varðar að innanríkisráðherra hafni þessari umdeildu ákvörðun borgarstjórnarmeirihlutans og standi þannig vörð um öruggar samgöngur, sjúkraflug og mest af öllu vilja kjósenda.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert