Tæknimenn RÚV samþykkja verkfall

Tæknimenn á Rúv hafa samþykkt að boða til verkfalls.
Tæknimenn á Rúv hafa samþykkt að boða til verkfalls. mbl.is/Ómar

Starfsmenn RÚV sem eru í Rafiðnaðarsambandi Íslands (RSÍ) hafa á ný boðað til verkfalls, fyrst dagana 16.-19. apríl næstkomandi og svo aftur frá 24. apríl, þá ótímabundið, náist ekki að semja.

Fyrir rúmri viku lá fyrir samkomulag um lykilatriði nýs fyrirtækjasamnings en á lokametrunum setti samninganefnd RSÍ fram nýjar kröfur sem voru þess eðlis að RÚV taldi óábyrgt að ganga að þeim, að því er segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu.

„Ríkisútvarpið vill að sjálfsögðu tryggja starfsmönnum RÚV sanngjörn kjör en sú viðleitni verður að vera í einhverju samhengi við þá samninga sem gerðir eru á almennum markaði og mega ekki stofna rekstri RÚV í óvissu til framtíðar. Í kjölfarið sleit samninganefnd RSÍ viðræðunum og sló þar með út af borðinu þær umbætur sem samkomulag lá þó fyrir um.

Í viðræðunum hafði RÚV samþykkt tillögur RSÍ um nýja launatöflu með starfsaldurshækkunum og skilgreiningu á störfum tæknimanna sem hefði leitt til umtalsverðrar kjarabótar, m.a. með nokkurri hækkun launa. Með því taldi RÚV sig vera að mæta breyttu tækniumhverfi og viðurkenna breytingar á starfssviði tæknimanna. Auk leiðréttinga á launaflokkum nú hefðu starfsmenn RSÍ sem starfa hjá RÚV fengið þær almennu hækkanir sem mögulega semst um í nýjum almennum kjarasamningum RSÍ og Samtaka atvinnulífsins. Þetta tilboð RÚV rann út á hádegi í dag, þann 7. apríl.

Ný krafa RSÍ þýddi að til viðbótar við það sem aðilar voru orðnir sammála um hefði mögulega komið til tvöföld launaflokkahækkun, annars vegar í gegnum fyrirtækjasamning og að auki í gegnum almennan kjarasamning RSÍ og SA,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að það séu stjórnendum RÚV mikil vonbrigði að tilboði um fyrirtækjasamning sem tók á lykilkröfum starfsmanna RÚV hafi verið hafnað og að viðræður séu því komnar á upphafsreit hjá Ríkissáttasemjara.  

„RÚV mun halda áfram að gera allt sem mögulegt er til að ljúka samningum og koma í veg fyrir að af verkfalli verði. Ljóst er að verkfallsaðgerðir RSÍ myndu hafa veruleg áhrif á þjónustu RÚV sem þorri þjóðarinnar nýtir sér daglega. Aðrir starfsmenn og stjórnendur RÚV munu leggja sig fram um að tryggja sem minnsta röskun á dagskrá og fréttastofan mun að sjálfsögðu standa vaktina, allan sólarhringinn sem endranær,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert