Óskar tímabundins leyfis

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hefur sent regluverði Reykjavíkurborgar og forseta borgarstjórnar bréf þar sem hún fer yfir viðskipti sín sem komu fram í Kastljósþætti. Hún ætlar að óska eftir tímabundu leyfi verði athugun á máli hennar ekki lokið þegar fæðingarorlofi hennar lýkur.

Í yfirlýsingu frá Sveinbjörgu Birnu, sem er oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn, kemur fram að auk bréfsins hafi hún boðist til að veita frekari skýringar á félögum sem voru stofnuð þegar hún var búsett og skattskyld í Lúxemborg telji regluvörður þörf á því.

Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar samþykkti í dag að fela innri endurskoðun borgarinnar og siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að taka hagsmunaskráningu borgarfulltrúa til skoðunar. Sveinbjörg Birna segist styðja þá tillögu.

„Ég vonast til að yfirferð um hagsmunaskráningu borgarfulltrúa verði lokið áður en ég kem aftur til starfa úr fæðingarorlofi 13. júní nk. Verði yfirferðinni á hinn bóginn ekki lokið þá mun ég óska eftir tímabundnu leyfi frá störfum mínum sem borgarfulltrúi þar til niðurstaða liggur fyrir,“ segir hún í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, borgarfulltrúa, í heild sinni:

Í fréttaskýringarþættinum Kastljósi sl. sunnudag var fjallað um félög sem voru stofnuð meðan ég var búsett og skattskyld í Luxemborg, löngu áður en ég hóf afskipti af stjórnmálum á Íslandi. Af því tilefni sendi ég regluverði Reykjavíkurborgar og forseta borgarstjórnar bréf þar sem ég fór yfir þau viðskipti sem fjallað er um í þættinum og bauðst til að veita frekari skýringar teldi regluvörður þörf á því.

Í dag samþykkti forsætisnefnd Reykjavíkurborgar tillögu um að fela innri endurskoðun Reykjavíkurborgar og siðanefnd Sambands Íslenskra sveitafélaga að taka til skoðunar hagsmunaskráningu borgarfulltrúa. Ég styð slíka tillögu og mun aðstoða framangreinda aðila við þá vinnu í hvívetna.

Sem borgarfulltrúa ber mér fyrst og síðast skylda til að gæta hagsmuna borgarbúa. Ég vonast til að yfirferð um hagsmunaskráningu borgarfulltrúa verði lokið áður en ég kem aftur til starfa úr fæðingarorlofi 13. júní nk. Verði yfirferðinni á hinn bóginn ekki lokið þá mun ég óska eftir tímabundnu leyfi frá störfum mínum sem borgarfulltrúi þar til niðurstaða liggur fyrir.

Ég hef tekið þessa ákvörðun til að borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina geti áfram veitt meirihluta borgarstjórnar nauðsynlegt aðhald. Fjárhagsstaða borgarinnar er sem kunnugt er slæm og viðvarandi tap á rekstri borgarinnar á sama tíma og dregið er úr þjónustu. Í mínum huga er þýðingarmest að kjörnir fulltrúar einbeiti sér að leysa slík mál, frekar en að eyða dýrmætum tíma í þref um skráningu mína á hagsmunaskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert