Össur sigraði í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Össur Skarphéðinsson þingmaður varð í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fór í dag. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður lenti í öðru sæti. Í þriðja sæti varð Eva H. Baldursdóttir lögfræðingur og náði hún bestum árangri þeirra frambjóðenda sem ekki hafa setið á þingi. Í fjórða sæti varð Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. 

Oddný G. Harðardóttir formaður flokksins fagnar komu nýrra og efnilegra einstaklinga í flokkinn. „Nú er forystusveit Samfylkingarinnar orðin ljós í öllum kjördæmum nema Suðurkjördæmi - í henni eru nýir og efnilegir einstaklingar í bland við okkar reynslumesta fólk. Nú tekur við snörp og skemmtileg barátta og ég hlakka til hennar,” er haft eftir Oddnýju í tilkynningu frá Samfylkingunni. 

Hér má sjá niðurstöðu prófkjörsins: 

Össur Skarphéðinsson - 664 atkvæði í fyrsta sæti. 
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir - 772 atkvæði í annað sæti. 
Eva H. Baldursdóttir - 802 atkvæði í þriðja sæti. 
Helgi Hjörvar - 848 atkvæði í fjórða sæti. 
Valgerður Bjarnadóttir - 822 atkvæði í fimmta sæti. 
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir - 1003 atkvæði í sjötta sæti. 
Auður Alfa Ólafsdóttir - 1053 atkvæði í sjöunda sæti. 
Steinunn Ýr Einarsdóttir - 1201 atkvæði í áttunda sæti. 

Eva H. Baldursdóttir og Oddný G. Harðardóttir. Eva varð í …
Eva H. Baldursdóttir og Oddný G. Harðardóttir. Eva varð í 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík og náði bestum árangri þeirra frambjóðenda sem ekki hafa setið á þingi. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert