Birgitta segir eftirlitsstofnanir bregðast

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, tjáir sig um málefni United Silicon …
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, tjáir sig um málefni United Silicon á Facebook. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, tjáir sig á Facebook-síðu sinni um frétt Stundarinnar um losun efna í skjóli nætur hjá United Silicon.

„Það þarf að gera eitthvað í þessu strax en því miður er það svo að enn og aftur eru eftirlitsstofnanir að bregðast hlutverki sínu,“ segir í færslu Birgittu, sem deilir fréttinni þar sem fullyrt er að kís­il­verk­smiðja United Silicon hafi losað hættu­leg eit­ur­efni út í and­rúms­loftið í skjóli næt­ur að unda­förnu út úr reyk­hreinsi­virki verk­smiðjunn­ar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert