Mótmæla endurræsingu United Silicon

Kísilmálmsmiðja United Silicon.
Kísilmálmsmiðja United Silicon. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Íbúasamtökin Andstæðingar stóriðju í Helguvík krefjast þess að kísilverksmiðja United Silicon verði ekki ræst aftur, jafnvel þótt um tímabundna gangsetningu vegna gagnaöflunar sé að ræða.

Þetta kemur fram í tilkynningu hjá samtökunum.

„Það er með öllu ólíðandi að húsnæði sem telst samkvæmt byggingareglugerðum vera fokhelt eða á byggingarstigi 4 sem telst tilbúið til innréttinga sé opnað fyrir kísilbræðslu sem fullbúin verksmiðja,“ segir í tilkynningunni.

Andstæðingar stóriðju í Helguvík hafa áður látið þá skoðun sína í ljós að Kísilverksmiðja United Silicon sé allt of nálægt íbúðabyggð. Þannig að í þessu gagnaöflunarferli þar sem ofninn er endurræstur eru íbúarnir enn og aftur notuð [sic] sem einhvers konar tilraunadýr hvað mengun varðar og heilsu íbúa stofnað í hættu.“

Samtökin stofnuð í síðustu viku

Samtökin voru stofnuð síðastliðinn þriðjudag. Markmið þeirra er er setja sér stefnu gegn stóriðju í Helguvík og vinna að henni.

Alls mættu um 50 manns á fyrsta fundinn en hann var sendur út í beinni útsendingu á Facebook-síðu samtakanna og er upptaka aðgengileg þar.

Kosið var í stjórn félagsins og er Einar M. Atlason formaður. Aðrir stjórnarmenn og varamenn eru María Magnúsdóttir, Þórólfur J. Dagsson, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Margrét Sigrún Þórólfsdóttir, Gunnar Auðunsson, Laeila Friðriksdóttir, Andri Freyr Stefánsson, Gunnlaugur Björgvinsson, Ragnar Ágústsson og Dagný Halla Ágústsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert