Íslenskur maður í haldi lögreglunnar í Albaníu

Íslenskur karlmaður var handtekinn í Albaníu.
Íslenskur karlmaður var handtekinn í Albaníu. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Íslenskur karlmaður er í haldi lögreglunnar í Albaníu. Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið. Ekki fékkst uppgefið hvað honum er gefið að sök né hversu lengi hann hefur verið í haldi. 

Samkvæmt heimildum mbl.is var maðurinn handtekinn fyrir tilraun til smygls á kannabisefnum um síðustu helgi. Utanríkisráðuneytið og ræðismaður Íslands í Albaníu vinna að málinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka