Minni umferð vegna veirunnar

Dregið hefur úr umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Dregið hefur úr umferð á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/​Hari

Kórónuveirufaraldurinn hefur víðtæk áhrif sem eru merkjanleg í umferðinni en hratt dregur úr henni í þremur lykilmælisniðum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum.

Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir að fyrstu þrjár vikurnar í mars hafi umferðin dregist saman um 10,1% frá sama tímabili á síðasta ári, sem er fáséður samdráttur á höfuðborgarsvæðinu.

Það snið sem dregst mest saman er á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk en þar hefur orðið 15,3% samdráttur í heild, eða sem nemur tæpu prósenti á sólarhring. Þessi samdráttur, á Hafnarfjarðarvegi, verður að teljast gríðarlegur þar sem fá dæmi ef nokkur eru um slíkt, haldi þetta áfram eða verði viðvarandi út mánuðinn, sem alls ekki er óhugsandi vegna nýlegs samkomubanns og þróunar Covid-19-faraldursins í samfélaginu,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

Samdrátturinn skiptist svona niður á sniðin þrjú:

Hafnarfjarðarvegur, við Kópavogslæk    15,3%

Reykjanesbraut við Dalveg                         9,1%

Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku       7,0%

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert