Birgir aðstoðar fólk í neyð í Úkraínu

Hjálparsamtökin sem Birgir er með gáfu börnum á flótta þessi …
Hjálparsamtökin sem Birgir er með gáfu börnum á flótta þessi leikföng. Þau dvelja nú í skólahúsnæði í Lviv. Ljósmynd/Birgir Þórarinsson

„Við erum að leggja grunninn að því að senda hjálpargögn hingað og fórum að skoða aðstæður.“

Þetta segir Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er staddur í borginni Lvív í Úkraínu í samtali við mbl.is.

Ferðin er ekki á vegum Alþingis.

Birgir heimsótti herspítala þar sem hann hitti unga menn sem …
Birgir heimsótti herspítala þar sem hann hitti unga menn sem hafa særst í stríðinu. Ljósmynd/Birgir Þórarinsson

Gefa mat og lyf

Birgir er með hjálparsamtökunum One Free World International í ferðinni en þau vinna að því að koma mat og lyfjum til þeirra í neyð.

Með samtökunum hefur Birgir hafa meðal annars heimsótt munaðarleysingjaheimili og herspítala. Hann segir heimsóknirnar hafa verið átakanlegar.

„Við töluðum við unga hermenn sem höfðu slasast alvarlega í stríðinu. Það var átakanlegt að sjá unga menn sem voru til dæmis búnir að missa fót eða hendi.“

Birgir með 21 árs gömlum hermanni sem særðist í stríðinu.
Birgir með 21 árs gömlum hermanni sem særðist í stríðinu. Ljósmynd/Birgir Þórarinsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert