Kennurum beri að sýna virðingu fyrir fjölbreytileika

Hinseginfélag FG hefur gefið frá sér tilkynningu í kjölfar pistils …
Hinseginfélag FG hefur gefið frá sér tilkynningu í kjölfar pistils Páls Vilhjámssonar, kennara við skólann. Styrmir Kári

Hinseginfélag fjölbrautarskólans í Garðabæ árétta það að rétturinn til tjáningar á kynvitund, kynhlutverkum og kynhneigð falli undir mannréttindi, í viðbrögðum við bloggskrifum Páls Vilhjálmssonar, kennara við skólann.

Páll birti umdeildan pistil um málefni hinsegin fólk á bloggi sínu, en úrdráttur úr pistlinum birtist í Staksteinum Morgunblaðsins í síðust viku. Full­yrðir Páll þar að Sam­tök­in '78 séu í hópi með aðilum sem aðhyll­ist barnagirnd og að trans fólk sé haldið rang­hug­mynd­um.

Ber að fylgja lögum og siðareglum kennara

Segir í tilkynningu félagsins að kennurum beri að sýna virðingu fyrir fjölbreytileika og gæta að framkomu sinnar á opinberum vettvangi, samkvæmt siðareglum Kennarasambands Íslands.

„Málfrelsi er líka mannréttindi en málfrelsið nær ekki yfir að meiða, smána eða valda öðrum sársauka og vanlíðan með opinberum skrifum. Slíkt getur brotið gegn grein númer 233 í almennum hegningarlögum,“ segir í tilkynningu félagsins.  

Umræðan sorgleg

Segir félagið það sorglegt að umræða um málefni hinsegin fólks, trans fólks og minnihlutahópa virðist fylgja sama mynstri og víða erlendis og einkennist því af minnkandi umburðarlyndi, fordómum og hatursorðræðu. 

Hinseginfélag FG hvetur til opinnar umræðu án fordóma og fyrirlitningar um málefni hinsegin, trans fólks og annarra hópa fólks. Slík umræða er leiðin til gagnkvæmrar virðingar og er um leið gæðastimpill á samfélagið. Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert