Andrea í efsta sæti á Akureyri

Stelpur á skautum í dag á Leirutjörn í gamla innbænum.
Stelpur á skautum í dag á Leirutjörn í gamla innbænum. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Andrea Hjálmsdóttir er í efsta sæti í forvali VG á Akureyri þegar fyrstu tölur eru birtar. Baldvin H. Sigurðsson bæjarfulltrúi sem einnig gaf kost á sér í fyrsta sætið er í því þriðja.

Talin hafa verið 223 atkvæði á Akureyri, af 434. Enn geta atkvæði átt eftir að berast í póstkosningu og verða lokatölur ekki kynntar fyrr en á þriðjudag.

Staðan núna er hins vegar svo:
 
1.  Andrea Hjálmsdóttir, 124
2.  Edward Huijbens, 123
3.  Baldvin H. Sigurðsson, 115
4.  Dýrleif Skjóldal, 96
5.  Kristín Sigfúsdóttir, 135
6.  Sóley Björk Stefánsdóttir, 140
7. Daði Arnar Sigmarsson, 134
8. Auður Jónasdóttir, 183
9. Guðmundur H. Helgason, 102

Andrea og Edward eru ný á lista.

VG hefur tvo bæjarfulltrúa á Akureyri, Baldvin H. Sigurðsson og Kristínu Sigfúsdóttur. 

Andrea Hjálmsdóttir er í efsta sæti hjá VG á Akureyri.
Andrea Hjálmsdóttir er í efsta sæti hjá VG á Akureyri.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert