Andrea opnar heimasíðu

Andrea J. Ólafsdóttir.
Andrea J. Ólafsdóttir. mbl.is/Sigurgeir

Forsetaframbjóðandinn Andrea J. Ólafsdóttir hefur opnað heimasíðu á netinu þar sem framboðið er kynnt.

Í pistli á síðunni segir Andrea að það yrði sitt fyrsta verk að efna til þjóðfundar til að móta viðmiðunarreglur fyrir forsetaembættið. „Það tel ég vandaða og lýðræðislega nálgun.“

„Ég er eini frambjóðandinn sem hef í hyggju að ræða með beinum hætti við þjóðina stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem ég myndi sverja eið að yrði ég kjörin í embættið,“ segir hún ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert