Hanna Birna býður sig fram til varaformanns

Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins,“ segir Hanna Birna í yfirlýsingu. „Með framboði mínu vil ég styrkja þá öflugu forystusveit sem Sjálfstæðisflokkurinn býr að um land allt, fá tækifæri til að vinna frekar að þeim breytingum sem þurfa að verða í stjórnmálum og leggja góðum verkum lið - í þágu hugsjóna Sjálfstæðisflokksins og hags alls almennings á Íslandi.“

Hanna Birna segir að í komandi kosningum skipti miklu að Sjálfstæðisflokkurinn nái góðum árangri og stuðli að nauðsynlegum breytingum til að binda enda á þá kyrrstöðu sem hér hefur hamlað uppbyggingu, framförum og lífskjörum á síðustu árum. „Aðeins með því að koma núverandi ríkisstjórn frá getum við vænst þess að skattar og skuldir lækki, atvinna aukist og Ísland verði land tækifæra, lífsgæða og farsælla lausna.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að slík framtíð bíði Íslendinga og mun því óska eftir stuðningi á landsfundi til að taka að mér frekara forystuhlutverk fyrir Sjálfstæðisflokkinn,“ segir í yfirlýsingu Hönnu Birnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert