Fyrsta formlega fundi formanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um stjórnarmyndun er nú lokið. Fundurinn gekk vel og verður haldið áfram með vinnuna á morgun.
Aðstoðarmenn þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, hafa staðfest við mbl.is að formennirnir munu ekki tjá sig frekar um gang viðræðnanna í dag.